January 16, 2004

Í dag varð ég módel....það gerðist þannig að ég fór með Sturla æskufélaga mínum niður á skrifstofu Casting, módelskrifstofunnar, en hann hefur verið að leika í auglýsingum fyrir þá síðustu árin...ekki nema það þó að ég er rifinn í myndatöku og ægilega upp með mér af því að þeir vilji hafa mig í gagnagrunni með sæta fólkinu....síðan förum við Stu á Thorvaldsens og fáum okkur kaffi og skömmu seinna hringir síminn....og viti menn daman hjá Casting vildi fá mig í prufu fyrir einhverja auglýsingu...en það hlaut að vera eitthvað bogið við þetta...jú auglýsingin er um mann sem er búinn að éta yfir sig yfir jólinn og þarf að fara að gera eitthvað í sínum málum....þetta er einmitt ímyndin sem ég er búinn að vera að reyna að skapa mér...þybbni náunginn sem ræður ekki við sig í jólaboðunum, hvað þá á ódýru hlaðborði í hádeginu og ber vaxtalagið því glöggt vitni...nei auðvitað er ég montinn af því að vera módel

No comments: