February 20, 2004

Go morgen...eða go Bush....hvað er málið með manninn í brúnni þarna fyrir vestan...er þetta það sem er talað um í sambandi við afleiðingar shaken baby syndrom....hann er nú bara ekki í lagi...sá úrklippu í sjónvarpinu með honum í gær þar sem hann lýsti því ótvírætt yfir að hjónaband væri bara til staðfestingar á sambandi karls og konu....what a load of craap...og þetta á að vera forseti framsæknasta og nútímalegasta lýðveldis veraldarinnar síðan heimsveldi Breta leið undir lok....þá kýs ég nú frekar te og smákökur....og hvað er með bandarísku þjóðina...hvernig er hægt að kjósa svona erkisauðnaut yfir sig...vona bara að þeir sjái að sér núna og kjósi hann félaga minn John Kerry...hann hefur allavega vit á því að vera á móti stríðsrekstri...

Af fjölskyldunni á Eggertsgötunni er það að frétta að Draupnir Dan fór í sína fyrstu bólusetningu í dag...12 vikna skoðun...drengurinn er fullkominn..eða það sagði læknirinn foreldrunum allavega...vóg 6,45 kg og mældist 65 cm...höj og slank eins og mamma sín...og viti menn hann Draupnir er harðjaxl líka af því hann fann ekkert fyrir því þótt ljósan hafi stungið hann með nál í lærið......enda er drengurinn kominn af harðjöxlum langt aftur í súrdælingaöld og kallar nú ekki allt ömmu sína þegar kemur að því að taka á honum stóra sínum......sennilega fann ég meira fyrir stungunni en hann....

En jæja...ég ætla ekki að klára allt djúsið í dag....heyrumst

February 19, 2004

Hvað fær menn til þess að gera sér svona...ekki það að ég sé öfundsjúkur en þessir gæjar þurfa að öllum líkindum að vera með vökva í æð til þess að halda í sér lífinu meðan þeir sofa.....why??? af hverju aðhyllast menn ekki frekar lífstíl æðaberu fiskibollunnar eins og ég....

February 18, 2004

hæhó kæru vinir...og vandamenn nær og fjær...nú er að vera liðinn mánuður síðan ég skrifaði síðast og mest af skrifunum hérna fjalla einmitt um það hvað sé langt síðan ég skrifaði eða djarfar yfirlýsingar um það hvað ég ætla að skrifa næst....ég ætla því að halda uppteknum hætti og lofa bót og betrun á komandi dögum og vikum...nú verður sko skrifað af öllum lífsins sálarkröftum þar til fer að blæða úr lyklaborðinu....nú fyrst ég er byrjaður að skrifa þá langar mig til að benda ykkur á að kíkja á þessa síðu hér....þetta er heimasíða vinar/vinkonu okkar sem á að koma í heiminn 18. júní....

látum þetta duga í bili þangað til á morgunn...það þýðir ekkert að þurrausa sig svona algjörlega á fyrstu skrifunum...heyrumst á morgunn.....

ps...kíkið á teiknimyndirnar hérna við hliðina...