February 18, 2004

hæhó kæru vinir...og vandamenn nær og fjær...nú er að vera liðinn mánuður síðan ég skrifaði síðast og mest af skrifunum hérna fjalla einmitt um það hvað sé langt síðan ég skrifaði eða djarfar yfirlýsingar um það hvað ég ætla að skrifa næst....ég ætla því að halda uppteknum hætti og lofa bót og betrun á komandi dögum og vikum...nú verður sko skrifað af öllum lífsins sálarkröftum þar til fer að blæða úr lyklaborðinu....nú fyrst ég er byrjaður að skrifa þá langar mig til að benda ykkur á að kíkja á þessa síðu hér....þetta er heimasíða vinar/vinkonu okkar sem á að koma í heiminn 18. júní....

látum þetta duga í bili þangað til á morgunn...það þýðir ekkert að þurrausa sig svona algjörlega á fyrstu skrifunum...heyrumst á morgunn.....

ps...kíkið á teiknimyndirnar hérna við hliðina...

No comments: